Author:
Gísli
[ Edit | View ]
|
Date Posted: 02:26:02 28/07/05 Thu
Erna mín, stundum þarf maður að passa sig á því að lesa það sem fólk skrifar áður en maður svarar því. Mér finnst í fínu lagi að senda út tilkynningar á alla í pósti um einhverja atburði en að ætla svo að senda svar á alla ("reply to all"), sem sagt vera með einhverjar umræður í fjöldapósti, finnst mér út í hött. Ég var ekki að segja að þú hefðir ekki átt að auglýsa þessa ferð með tölvupósti en þegar ég fékk 3 svör sem voru send á alla, þar að auki bara "Vei vei, gaman gaman" pósta, fannst mér það einum of. Það er mjög auðvelt að misnota fjöldapóst og ég mæli ekki með því að það verði gert með kórpóstinn.
[ Post a Reply to This Message ]
|