VoyForums
[ Show ]
Support VoyForums
[ Shrink ]
VoyForums Announcement: Programming and providing support for this service has been a labor of love since 1997. We are one of the few services online who values our users' privacy, and have never sold your information. We have even fought hard to defend your privacy in legal cases; however, we've done it with almost no financial support -- paying out of pocket to continue providing the service. Due to the issues imposed on us by advertisers, we also stopped hosting most ads on the forums many years ago. We hope you appreciate our efforts.

Show your support by donating any amount. (Note: We are still technically a for-profit company, so your contribution is not tax-deductible.) PayPal Acct: Feedback:

Donate to VoyForums (PayPal):

Á forsíðu spjallsins
Subject: Hin rétta leið!!!


Author:
Þengill
[ Next Thread | Previous Thread | Next Message | Previous Message ]
Date Posted: 00:55:37 20/07/05 Wed

Mér datt í hug að gera leiðalýsingu inní Þrastarlund, nánartiltekið Ákalund (Forsetalund), fyrir þá sem ekki rata og koma ekki í fylgd með fullorðnum!!! :)
Miðast við að keyrt sé úr Reykjavík!!!(ekki yfir Kjöl) ;)

Í fyrsta lagi er málið að rata út úr Rvk.
Haldið er út úr borginni sem leið liggur framhjá Rauðavatni í ca. austurátt.
Ekki er farið í gegnum Mosfellsbæ heldur beygt til hægri áður en komið er að Grafarholti, nema auðvitað þeir sem koma úr Grafarholti eða Grafarvogi, þá er beygt til vinstri á ljósunum áður en komið er að Shell og Ártúnsbrekkubrúnni. ;)
Við Rauðavatn er fyrsta alvöru hindrunin, hringtorg!!!
Ekki beygja til hægri á hringtorginu, þá lendiði uppí Breiðholti, ekki viljiði fara þangað. Keyrið hálfhring í hringtorginu og haldið áfram. Málið snýst um að elta skilti sem stendur VÍK. Nú má segja að þið séuð komin uppí sveit. Og þá gætuð þið farið að rekast á(sjá) skrítinn fyrirbæri með fjórar fætur og trýnið ofaní grasinu, mun þetta líklegast vera dýr sem kallast hestur eða "ho ho"!!! ;)
Ekki er mælt með því að þið eltið dýrin!!

Jæja áfram með smjörið. Nokkrar brekkur verða á leið ykkar, ekki þarf að hafa áhyggjur af þeim. Flestir bílar drífa upp þessar brekkur. Ekki líður að löngu þangað til þið keyrið framhjá lítilli sjoppu/bensínstöð er kallast "Litla Kaffistofan". Þar má stoppa til að létta á sér eða kaupa sér hressingu, sérílagi ef fólk er orðið þreytt á sitja í bíl. Enda búið að sitja í bíl í ca. 10 mín.
Næsta hindrun er nokkuð fyrir ofan Litlu Kaffistofuna. Gatnamót er kallast Þrengslavegamót. Ekki fara beint, heldur beygjið aflíðandi beygju til vinstri. Annars lendið þið í næsta bæ við Vestmannaeyjar, Þorlákshöfn. Ekki viljum við það!!! Eins og ég sagði fyrr, elta skilti sem stendur á VÍK!!!
Þegar þessari beygju líkur er stefnan tekin á Hellisheiðina. Upp brekku þar sem Skíðaskálinn í Hveradölum er á vinstri hönd. Þegar þessari brekku líkur (sem á ekki að vera vandamál fyrir flesta bíla) eru þið komin uppá heiðina sjálfa. Ekki þarf að búast við óveðri né hálku á þessum tíma árs. Þetta er nokkuð beinn og breiður vegur. Ekki líður að löngu þar til þið komið á Kambabrún. Þar er, í góðu veðri, gríðarlegt útsýni yfir suðurlandsundirlendið. Allt að Eyjafjöllum og Eyjafjallajökli. Skemmtilegt!!! :)
Kambar kallast brekkan niður af Hellisheiðinni. Nokkuð brött og bylgjótt. Þegar niður er komið er Verahvergi(Hveragerði) á vinstri hönd og annað hringtorg, ekki vera hrædd. Það er sama sagan þar, hálfhring á torginu og elta VÍK. Svo beint áfram. Nokkru síðar er kirkja á hægri hönd er heitir Kotströnd. Þið haldið áfram, nálgist Ingólfsfjall á vinstri hönd og Kögunarhóll á hægri. Farið þar á milli og keyrið þangað til þið sjáið skilti sem stendur á
"35 Laugarvatn 38" Beygjið þar til vinstri. Ekki halda áfram inná selfoss, nema að ykkur vanti eitthvað. Ríkið er opið til 19:00 á föstudag og 10-14 á laugardag. Bónus er líka opið á föstudag til 19:00, minnir mig.
En allavega, til vinstri, vinstri, laugarvatn, vinstri!!!
Keyrið meðfram fjallinu, sem skírt er í höfuðið á Ingólfi Arnarsyni landnámsmanni. Þ.e.a.s með Ingólfsfjall á vinstri hönd og Ölfusá, sem er vatnsmesta á landsins, og allt suðurlandsundirlendið á þeirri hægri. Svo komið þið að brú sem heitir ekki Litla Brú, heldur einfaldlega Sogsbrú. Því, jú hún er einmitt yfir ánna Sogið. Sem er, nota bene, vatnsmesta bergvatnsá landsins. Skemmtilegt!!! :)
Farið yfir hana og beygjið þar til vinstri. Inná planið hjá veitingaskálanum í Þrastarlundi. En ekki fara alla leið á malbikaða planið, heldur farið má segja strax aftur til hægri og inní skóginn. Keyrið þar til þið komið að stórri flöt, farið vinstra megin við flötina og beygjið strax til vinstri þegar þið eruð komin framhjá klósettunum. Þar er bílaplan sem þið leggið bílnum ykkar á. Gangið svo göngustíginn sem er vinstramegin útaf planinu og svo aftur til vinstri stuttu seinna (ekki niður að á). Þá ættuð þið að komast inní Forsetalundinn(Ákalund).

Þetta ætti að koma ykkur á staðinn á svona ca.45mín. Kannski svolítið ítarleg lýsing!!! :)

Ef þið lendið í vandræðum þá bara bjalliði í mig!!!
866-5566 Þengill.

[ Next Thread | Previous Thread | Next Message | Previous Message ]

Replies:
[> Subject: Re: Hin rétta leið!!!


Author:
Hilla
[ Edit | View ]

Date Posted: 01:47:13 20/07/05 Wed

Takk fyrir þetta þengill!!! Nú ætti ég að rata!! :o)

[ Post a Reply to This Message ]
[> Subject: Re: Hin rétta leið!!!


Author:
gemill
[ Edit | View ]

Date Posted: 10:25:35 20/07/05 Wed

Fer ég til vinstri hjá skiltinu: "35 Laugarvatn 38" ? ;o)

[ Post a Reply to This Message ]
[> Subject: Re: Hin rétta leið!!!


Author:
Ýrr
[ Edit | View ]

Date Posted: 10:28:58 20/07/05 Wed

Já gauj gauj, rataru ekki í Þrastarlund? Ég skal líka segja þér meir ef þú ratar ekki :-0

thíhí, mér finnst þú ógissla fyndinn þengill.

[ Post a Reply to This Message ]
[> Subject: Re: Hin rétta leið!!!


Author:
Ásdís
[ Edit | View ]

Date Posted: 14:17:38 20/07/05 Wed

já maður hlýtur nú að raba á þetta!

[ Post a Reply to This Message ]
[> Subject: Re: Hin rétta leið!!!


Author:
Begga döööö
[ Edit | View ]

Date Posted: 15:49:24 20/07/05 Wed

Já - ein ábending þetta er Þrastarlundur EKKI Þjórsárdalur!!! eins og ég var búin að bíta í mig í fyrra :)

[ Post a Reply to This Message ]
[> Subject: Re: Hin rétta leið!!!


Author:
gemill
[ Edit | View ]

Date Posted: 17:34:01 20/07/05 Wed

En ég er sammála því að maður FER EKKI til Þorlákshafnar og nema líf liggi við og hana nú.

[ Post a Reply to This Message ]
[> Subject: Re: Hin rétta leið!!!


Author:
Begga ;)
[ Edit | View ]

Date Posted: 18:24:04 20/07/05 Wed

he he eru þau ekki öll frekar óþörf þessi krummaskuð þarna á Suðurlandinu?

[ Post a Reply to This Message ]
[> Subject: Re: Hin rétta leið!!!


Author:
Þengill
[ Edit | View ]

Date Posted: 18:42:07 20/07/05 Wed

Ekki Þorlákshöfn. Ef ekki væri til Þorlákshöfn þá væri ekki til Herjólfur og þá væri ekki til Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum!!! Ekki það að mér sé ekki sama!!! :)

[ Post a Reply to This Message ]


Post a message:
This forum requires an account to post.
[ Create Account ]
[ Login ]
[ Contact Forum Admin ]


Forum timezone: GMT+0
VF Version: 3.00b, ConfDB:
Before posting please read our privacy policy.
VoyForums(tm) is a Free Service from Voyager Info-Systems.
Copyright © 1998-2019 Voyager Info-Systems. All Rights Reserved.