Author:
Hjálmtýr
|
[
Next Thread |
Previous Thread |
Next Message |
Previous Message
]
Date Posted: 23:43:40 22/Sep/2007
In reply to:
Jóhann
's message, "Varðandi verkefni 1" on 17:37:00 22/Sep/2007
>Ég var að velta fyrir mér ýmsu varðandi verkefni 1.
>Í fyrsta lagi skil ég ekki af hverju leikmenn og
>dómarara þurfa að geyma fæðingardag þegar þessar
>upplýsingar eru hvort eð er geymdar í kennitölunni.
>Mér finnst það vera óþarfa tvítekning og var því að
>velta því fyrir mér hvort við mættum ekki sleppa því.
>Í öðru lagi þá eru inntaksgögnin frekar skrítin, þ.e.
>t.d. kemur þessi einstaklingur fyrir tvisvar í sama
>liðinu:
>
>28, Andri Fannar Stefánsson, 220491-2269, Hægri
>kantur, karl
>11, Andri Fannar Stefánsson, 220491-2269, Framherji,
>karl,
>
>og þessi kennitala fyrir tvisvar:
>
>25, Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, 090691-2959,
>Miðjumaður, karl
>8, Gunnar Jarl Jónsson, 090691-2959, Miðjumaður,karl,
>
>og í leiknum Bloggarar – Vafrarar fær Einar
>Þórmundsson gult spjald sem er skemmtilegt vegna þess
>að hann fékk einmitt tvo gul spjöld í leiknum Bitarnir
>– Nördarnir og er því greinilega í tveimur mismunandi
>liðum.
>Allt þetta myndi ekki skipta neinu máli nema vegna
>þess að við þurfum að skila niðurstöðum úr SQL
>fyrirspurnum á inntakssafnið. Hvað viljið þið þá að
>við gerum? Breytum öll inntaksgögnunum, hver á sinn
>hátt, eða þið lagið inntaksgögnin eða við sleppum þvi
>að skila niðurstöðum úr SQL-fyrirspurnum.
Ég skal svara þér þessu um fæðingardaginn. Ég og dæmatímakennararnir (sem sömdu verkefnið) ræddum aðeins um
þetta atriði. Það er rétt að þetta er endurtekning á upplýsingum, því kennitalan inniheldur fæðingardaginn.
Hins vegar er hann þar á form sem er frekar óþægilegt að vinna með. Þetta er væntanlega 10-stafa strengur, þar sem
fyrstu 6 stafirnir eru ddmmáá, en síðan kemur öldin (eða partur af henni sem aftasti stafurinn í kennitölunni.
Til dæmis ef þú ætlar að bera saman aldur leikmanna með kennitölurnar 311299-1239 og 010100-1230, þá þarf að klippa
þessa tölustafi saman. Það væri því mun þægilegra að hafa fæðingardaginn sem DATE-svið sem auðvelt er að vinna með.
Ókosturinn er aftur á móti sá að nú erum við með fæðingardaginn á tveimur stöðum í sömu töflu, sem er ekki
mjög smekklegt. Það er ekkert eitt rétt í þessu.
Ég skal athuga með prófunargögnin. Það getur vel verið að það þurfi að leiðrétta þau.
[
Next Thread |
Previous Thread |
Next Message |
Previous Message
]
|