VoyForums

Login ] [ Contact Forum Admin ] [ Main index ] [ Post a new message ] [ Search | Check update time | Archives: [1] ]
Subject: Aðferð 3


Author:
HHH
[ Next Thread | Previous Thread | Next Message | Previous Message ]
Date Posted: 14:03:08 03/13/04 Sat
In reply to: Hörður Helgi Helgason 's message, "Forritunarverkefni 2" on 15:03:07 03/09/04 Tue

Svo er það varðandi þriðju aðferðina, þ.e. tengdi listinn. Þar er ég heldur ekki alveg að ná lýsingunni:

„Óraðaður tengur listi með færa-fremst reglunni (þ.e. ef stak finnst í listanum er það fært fremst í listann). Ný stök koma fremst. Leitað er með runuleit í listanum.“

Fyrst segir að þetta sé óraðaður listi. En svo segir að það þýði að „ef stak finnst í listanum er það fært fremst í listann“. Þetta er þá ekki mikið óraðaður listi lengur, heldur er einmitt búið að grófraða honum þannig að orð sem koma oftar fyrir lenda frekar framarlega en orð sem koma einungis einu sinni fyrir raðast öll aftast í listanum. Að vísu segir svo í lýsingunni að ný stök komi (einnig) fremst, en listinn verður þá a.m.k. hálfraðaður.

Væri ekki nær lagi að bæta nýjum stökum aftast og fá þannig raðaðan lista eftir stærð, í stað þess að bæta bæði nýjum og fundnum stökum fremst? Hver er tilgangurinn með að setja ný stök fremst?

[ Next Thread | Previous Thread | Next Message | Previous Message ]

Replies:
Subject Author Date
Re: Aðferð 3Hjálmtýr17:33:32 03/14/04 Sun


[ Contact Forum Admin ]


Forum timezone: GMT+0
VF Version: 3.00b, ConfDB:
Before posting please read our privacy policy.
VoyForums(tm) is a Free Service from Voyager Info-Systems.
Copyright © 1998-2019 Voyager Info-Systems. All Rights Reserved.