VoyForums
[ Show ]
Support VoyForums
[ Shrink ]
VoyForums Announcement: Programming and providing support for this service has been a labor of love since 1997. We are one of the few services online who values our users' privacy, and have never sold your information. We have even fought hard to defend your privacy in legal cases; however, we've done it with almost no financial support -- paying out of pocket to continue providing the service. Due to the issues imposed on us by advertisers, we also stopped hosting most ads on the forums many years ago. We hope you appreciate our efforts.

Show your support by donating any amount. (Note: We are still technically a for-profit company, so your contribution is not tax-deductible.) PayPal Acct: Feedback:

Donate to VoyForums (PayPal):

Login ] [ Contact Forum Admin ] [ Main index ] [ Post a new message ] [ Search | Check update time | Archives: [1] ]
Subject: Aðferð 4


Author:
HHH
[ Next Thread | Previous Thread | Next Message | Previous Message ]
Date Posted: 17:54:52 03/14/04 Sun
In reply to: Hörður Helgi Helgason 's message, "Forritunarverkefni 2" on 15:03:07 03/09/04 Tue

Loks finnst mér aðeins vanta á að lýsingin á aðferð 4 sé nægilega skýr:

„Öll orðin eru sett í vektor (sem er stækkaður eftir þörfum) eins og þau koma fyrir í bókinni.“

Sviginn veldur ekki miklum vandkvæðum. Þar má einfaldlega lesa „stækkaður eftir þörfum“ sem 'tvöfalda eftir þörfum', fyrst að ekki eru gefnar aðrar vísbendingar um hvað átt sé við með „eftir þörfum“. Hins vegar er aðeins óljósara hvað átt er við með að „[ö]ll orðin [séu] sett í vektor [...] eins og þau koma fyrir í bókinni“. Er átt við að taka eigi (texta)skrá með bókinni og þessi aðferð 4 lesi sjálf úr henni? Eða að búið skuli vera að setja saman vigur með orðunum í bókinni og aðferðin eigi að vinna á honum? Eða á að fara milliveginn og taka inn slíkan vigur, en afrita úr honum yfir í annan vigur (sem „stækkar eftir þörfum“)? Ég hallast að síðustu leiðinni, ef engar aðrar leiðbeiningar koma til, einkum m.t.t. til þess að fá eitthvað í átt við marktækan samanburð við hinar aðferðirnar þrjár.

„Vektorinn er síðan raðaður með Quicksort.“

Spurning hvaða útfærslu eigi/megi nota. Ekki kannski áríðandi atriði. Ef engar aðrar leiðbeiningar koma til er rökrétt að nota einfaldlega grunnútgáfuna úr upphafi 7. kafla í kennslubókinni.

„Farið gegnum vektorinn og endurtekin stök dregin saman í eitt ásamt fjölda þeirra. “

Hérna er hins vegar meira áríðandi spurningu ósvarað: Á að nota hér sama vigurinn og áðan „stækkaði eftir þörfum“? Það myndi þýða afskaplega miklir flutningar niður eftir vigrinum af stökum sem eru fyrir aftan stök sem er nýbúið að sameina. Það myndi einnig þýða að þessi „stækkar eftir þörfum“ vigur væri ekki strengjavigur heldur OrdTidni vigur, en það passar ekki alveg við orðalagið „[ö]ll orðin eru sett í vektor“, sem gefur frekar í skyn að þar sé um strengjavigur að ræða. Auk þess verður þessi vigur með vel á annað hundrað þúsund stök. Sem er svo ekkert tekið fram um að eigi að 'minnka eftir þörfum' aftur eftir að búið er að þjappa orðunum niður fyrir tíu þúsund. Ekki mjög snyrtilegt. Því væri nær að skrifa setninguna ítarlegar þannig: „Farið gegnum vektorinn og endurtekin stök dregin saman í eitt – í öðrum vigri – ásamt fjölda þeirra.“ í staðinn fyrir þannig: „Farið gegnum vektorinn og endurtekin stök dregin saman í eitt – í sama vigri – ásamt fjölda þeirra.“

[ Next Thread | Previous Thread | Next Message | Previous Message ]

Replies:
Subject Author Date
Re: Aðferð 4Hjálmtýr21:15:06 03/14/04 Sun


[ Contact Forum Admin ]


Forum timezone: GMT+0
VF Version: 3.00b, ConfDB:
Before posting please read our privacy policy.
VoyForums(tm) is a Free Service from Voyager Info-Systems.
Copyright © 1998-2019 Voyager Info-Systems. All Rights Reserved.