| Subject: Re: Aðferð 2 |
Author:
Hjálmtýr
|
[
Next Thread |
Previous Thread |
Next Message |
Previous Message
]
Date Posted: 17:25:10 03/14/04 Sun
In reply to:
HHH
's message, "Aðferð 2" on 13:52:57 03/13/04 Sat
>Í lýsingu á aðferð 2 segir fyrst: „Flest stökin
>eru í röðuðum vektor, en ný stök eru sett í óraðaðan
>vektor, en þegar hann er kominn með 20 stök þá eru þau
>sett inní stóra raðaða vektorinn.“
>
>Gott og vel. Þetta myndi þá þýða að þegar nýtt stak
>væri lesið inn væri athugað (með runuleit, sjá hér að
>neðan) hvort orðið kæmi þegar fyrir í litla vigrinum
>og ef svo, þá væri fjöldi þess hækkaður um 1 þar, en
>annars bætt í laust sæti í (litla) vigrinum. Þegar
>hann væri orðinn fullur, yrðu stökunum úr honum raðað
>á réttan stað í stóra vigrinum (með helmingunarleit,
>sjá hér að neðan). Það sem veldur heilabrotum er
>seinni hluti lýsingarinnar:
>
>„Við leit að staki er bæði leitað með
>helmingunarleit í stóra vektornum og runuleit í litla
>vektornum.“
>
>Hvað er átt við með „bæði“ í stóra og
>litla? Er ekki ljóst að það verður einmitt aldrei
>leitað nema í öðrum vigrinum fyrir sig? Annars vegar í
>litla vigrinum þegar orð er lesið úr bókarskránni (eða
>bókarvigrinum...) en hins vegar ekki í stóra vigrinum
>fyrr en farið er að raða þangað inn stökunum úr litla
>vigrinum, þegar hann er orðinn fullur?
Ja, þú bætir ekki inn orði sem er þegar fyrir í raðaða vektornum (þ.e. þeim stóra) (og ekki heldur ef það er þegar fyrir í óraðaða vektornum (þ.e. þeim litla)).
Það er alveg rétt að það er ekki alltaf leitað í báðum vektorunum, því ef það finnst í þeim stóra, þá er sá teljari hækkaður, og ef það finnst í þeim óraðaða, þá er teljari þess hækkaður þar. Það er væntanlega skynsamlegt að leita fyrst í raðaða vektornum og ef það finnst ekki þar, þá fara í þann óraðaða
[
Next Thread |
Previous Thread |
Next Message |
Previous Message
]
| |