Author: Jóhann [ Edit | View ]
|
Date Posted: 17:37:00 22/Sep/2007
Ég var að velta fyrir mér ýmsu varðandi verkefni 1.
Í fyrsta lagi skil ég ekki af hverju leikmenn og dómarara þurfa að geyma fæðingardag þegar þessar upplýsingar eru hvort eð er geymdar í kennitölunni. Mér finnst það vera óþarfa tvítekning og var því að velta því fyrir mér hvort við mættum ekki sleppa því.
Í öðru lagi þá eru inntaksgögnin frekar skrítin, þ.e. t.d. kemur þessi einstaklingur fyrir tvisvar í sama liðinu:
28, Andri Fannar Stefánsson, 220491-2269, Hægri kantur, karl
11, Andri Fannar Stefánsson, 220491-2269, Framherji, karl,
og þessi kennitala fyrir tvisvar:
25, Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, 090691-2959, Miðjumaður, karl
8, Gunnar Jarl Jónsson, 090691-2959, Miðjumaður,karl,
og í leiknum Bloggarar – Vafrarar fær Einar Þórmundsson gult spjald sem er skemmtilegt vegna þess að hann fékk einmitt tvo gul spjöld í leiknum Bitarnir – Nördarnir og er því greinilega í tveimur mismunandi liðum.
Allt þetta myndi ekki skipta neinu máli nema vegna þess að við þurfum að skila niðurstöðum úr SQL fyrirspurnum á inntakssafnið. Hvað viljið þið þá að við gerum? Breytum öll inntaksgögnunum, hver á sinn hátt, eða þið lagið inntaksgögnin eða við sleppum þvi að skila niðurstöðum úr SQL-fyrirspurnum.
|