VoyForums

Login ] [ Contact Forum Admin ] [ Main index ] [ Post a new message ] [ Search | Check update time | Archives: [1] ]


Velkomin

Subject: Fyrirsjánleg hegðun alpha-betu útfærslu


Author:
No name
[ Edit | View ]

Date Posted: 05:07:23 04/10/04 Sat

Mig langaði að vita hvað væri góð prósenta á að vinna random forritið oft með sinni eigin útfærslu?
Ég er kominn upp í ~75% vinningshlutfall ef ég byrja,
en ef ég er leikmaður 2.
Eftir allt saman þá býst útfærslan við ákveðinni hegðun sem að random forrit sýnir ekki.

Síðan ef að mitt eigið forrit keppir við sjálft sig þá vinnur það instance sem byrjar alltaf, er það ekki rétt?
Má hafa random val á fyrsta leik í forritinu (sem leikmaður 1 eða tvo, s.s fyrstu 2 leikirnir eru ekki settir í alpha-beta)?
Replies:
Subject: Dýpi leitar


Author:
No name
[ Edit | View ]

Date Posted: 19:29:15 04/08/04 Thu

Þú sagðir í tíma á þriðjudaginn að dýpið í keppninni mætti vera 6 leikir en það stendur ennþá á dæmablaðinu að það verði 4?

Ef að hámark leikja til að vinna eru 8 leikir, og fyrstu tveir leikirinir eru ekki sérlega mikilvægir, er þá ekki frekar auðvelt að reikna sig til sigurs með 6 leikja dýpi?
Replies:
Subject: Leikmanna klasi


Author:
Hjálmtýr
[ Edit | View ]

Date Posted: 11:06:20 04/07/04 Wed

Ég fékk eftirfarandi spurningu í tölvupósti:

> Telst það ekki full skil að koma eingöngu með nýja
> útfærslu á leikmanni, en notast við allt annað sem er
> gefið fyrir keppnina?

Til að leysa Forritunarverkefni 3 þarftu að skila forriti
sem notandinn getur spilað á móti. Síðan var hugmyndin að
þið tækjuð kjarnan úr því forriti (og e.t.v. endurbættuð)
og skiluðuð í keppnina. Skil í keppnina eru tveim dögum
eftir skil fyrir verkefnið.

Það er því ekki nóg að skila leikmanna-klasa sem lausn á
Forritunarverkefni 3. Þá vantar notendaviðmót (en það er
ekki flókið).
Subject: Tac Tic Toe kóði


Author:
Aðdánandi
[ Edit | View ]

Date Posted: 13:19:13 04/02/04 Fri

Sæll Hjálmtýr.
Ég var að leita að c++ kóða fyrir tac tic toe en ég fann ekki slíku á netinu. Hafði leitað með google-vél en found not. Veistu eitthvað um siðu sem sýna kóði fyrir TAC TIC TOE?

ps til að geta skilið betra leikjatrjáum. :)

kveðja Aðdánandi
Replies:
Subject: Spurning um dæmi 3


Author:
Hjálmtýr
[ Edit | View ]

Date Posted: 17:40:05 03/25/04 Thu

Ég fékk eftirfarandi spurningu frá nemanda:

>í dæmi 3 fáum við röð "PRIO*R**I*T*Y***QUE***U*E" stjarna á að þýða "eyða
>stærsta (aftast í stafr.)" en er það rétt skilið hjá mér að ég skrifa út
>"PRIO" eyði "Y" skrifa "PRIOR" eyði "UU" o.s.fr.
>Ef það er málið eftir að ég er búin að skrifa út "I" þá eyði ég "T", á ég
>þá að hoppa yfir það eða hvað.....???

Ég er ekki alveg viss um að ég skilji spurninguna. Þetta er þó það
létt dæmi að ég get ekki gefið mikið upp. En dæmið segir: "...Sýnið
röð gildanna sem eyða stærsta aðgerðirnar skila." Þið eigið sem
sagt aðeins að sýna stökin sem koma út úr eyða stærsta aðgerðinni.

Ef ég endursegi strenginn "PRIO*R*...", þá er það eftirfarandi:

Byrja með tóma forgangsbiðröð. Fyrst kemur setja inn P, síðan kemur
setja inn R, síðan kemur setja inn I, síðan kemur setja inn O, síðan
kemur eyða stærsta, síðan kemur setja inn R, síðan kemur eyða stærsta, o.s.frv.

Þið eigið að segja hvað kemur út við hverja eyða stærsta aðgerð.
Replies:
Subject: insertion sort vandræði


Author:
No name
[ Edit | View ]

Date Posted: 20:35:15 03/17/04 Wed

Þegar ég tek inn stóra textaskrá eins MANSFIELD PARK þá lýkur insertionSort í fyrstu aðferðinni aldrei keyrslu. En þegar ég tek inn skrá sem er minni þá virkar allt fínt.
Veit einhver hvað gæti verið að? Það kemur engin keyrsluvilla, forritið klárar bara minnið og tölvan verður hægvirk. Skil samt ekki afhverju þetta virkar fyrir litla skrá, en ekki stóra, því það eru engin overflow vandamál...
Replies:
Subject: s


Author:
No name
[ Edit | View ]

Date Posted: 14:06:53 03/17/04 Wed

Subject: Forritunarverkefni 2


Author:
Hörður Helgi Helgason
[ Edit | View ]

Date Posted: 15:03:07 03/09/04 Tue

Ég byrjaði á að þýða gefna klasann, OrdTidni, en fékk mýgrút af villuboðum. Flest þeirra rjátluðust af við að bæta inn augljósum hlutum á borð við ?#include “ og ?using namespace std;“

Ástæða þess að ég slæ inn þessar línur hér, er hins vegar að nokkur villuboð urðu samt eftir. Þau beindust flest að aðferðinni string ord(). Eftir töluverðar tilraunir datt mér í hug hvort það stæði e.t.v. eitthvað í þýðandanum að aðferðin héti sama nafni og önnur af private breytunum. Jújú, það reyndist a.m.k. nóg til að losna við síðustu villuboð þýðandans að umskíra private breytuna, hvar sem hún kemur fyrir, úr ?ord“ í ?ordin“, en láta aðferðina halda sínu heiti.

Nú sýnist mér einkum þrjár skýringar á þessu koma til greina:

- Í C++ er _ekki_, þrátt fyrir það sem ég áður hélt, hægt að gefa breytum og föllum sömu nöfn. Þetta væri því villa í kóða.
- Þýðandinn sem ég er að nota (GCC 3.3) ræður ekki við þetta, en ætti að gera það. Þetta væri því galli í þýðanda.
- Eitthvað annað var að, en hætti að kvarta vegna þessara tilfæringa minna. Þá kynni virknin einnig að hafa breyst og klasinn mun því ekki starfa eins og honum var ætlað. Þetta væri því óþekkt villa, sem e.t.v. er enn til staðar.
Replies:
Subject: Spurning 5 á vikublaði 8


Author:
No name
[ Edit | View ]

Date Posted: 11:06:48 02/27/04 Fri

Hvað er "einkvæmt ákvarðað" ???
Replies:
Subject: Forritunarverkefni 2


Author:
Ymir
[ Edit | View ]

Date Posted: 00:00:33 03/17/04 Wed

Mig langaði að benda fólki á að í stað þess eyða púðri í að búa til ofsafenginn kóða til að aðskilja orð (sbr. C aðferðir á borð við strtok(), eða strchr() ásamt isspace()) er til afar einföld leið til að lesa inn strengi með string klasanum í C++:

string s;
cin >> s;

mun lesa inn næsta orð úr in-straumnum í s. Ef t.d. inntak er "Orð bla halló!" í eftirfarandi forritsbút:

string s;
cin >> s; cout << "'" << s << "', ";
cin >> s; cout << "'" << s << "', ";
cin >> s; cout << "'" << s << "'.";

mun prentast út 'Orð', 'bla', 'halló!'. Að sjálfsögðu má nota aðra strauma í þessum tilgangi, t.a.m. væri hentugt að nota:

string s;
ifstream inp("bok.txt");
while (inp >> s)
{
cout << "Las orðið '" << s << "'!\n";
}

sem mun hætta þegar öll orð úr skránni 'bok.txt' hafa verið lesin.

Auk þess hafa borist spurningar um hvernig bera megi saman tvo strengi til að raða þeim í röð. String klasinn býður einfaldlega upp á aðgerðirnar '<', '>', og '==' fyrir samanburð. Dæmi:

string s1 = "Lambakaka", s2 = "Lambabaka";
if (s1 > s2) cout << "Whee!" << endl;

mun skila "Whee!" þar sem fyrri strengurinn er aftar en hinn seinni í stafrófinu m.t.t. ASCI-gilda.

Vona að þetta nýtist einhverjum!

Kveðja,
Ýmir
Subject: Spurning um lið 4b í skila


Author:
No name
[ Edit | View ]

Date Posted: 18:30:01 02/25/04 Wed

Replies:
Subject: Spurning um lið 4b í heimdæmum 5


Author:
Gummi
[ Edit | View ]

Date Posted: 18:36:11 02/25/04 Wed

Sæll..

Smá spurning hvernig þú skilgreinir verkefni 4b, þar sem sagt er að n sé vinstra megin við m. Ertu að meina að n og m eiga sama foreldri, eða að þeir séu einhversstaðar á sama "level" í trénu, hvort sem þeir hafa sama foreldri eða ekki

og með foreldri er ég bara að tala um í 1. lið.. engar ömmur/afa eða svoleiðis.. :)
Replies:
Subject: Template skilgreiningar


Author:
Jóhann H. Gunnarsson
[ Edit | View ]

Date Posted: 19:52:29 02/22/04 Sun

Ég hef verið að reyna að búa til clasa sem er með struct inn í sér. Málið er að struct-ið inniheldur þau gildi sem klasinn er að sjá um að geyma.
Hvernig get ég búið til template fyrir þennan clasa svo það "erfist" ofan í structið?
S.s senda áfram týpuna sem klasinn er?

S.s
template
class bla
private:
struct node
{ Item x[] .....}


int main()
bla(int) intKlasi = new bla()
Replies:
Subject: Infix -> Postfix


Author:
Jóhann H.
[ Edit | View ]

Date Posted: 23:34:36 02/18/04 Wed

Áttu nákvæma skilgreiningu af því hvernig infix er breytt í postfix og öfugt? Ég er mest að pæla í varðandi operator precedence og hvernig svigar (bæði vinstir og hægri) eru höndlaðir.
Veit ekki hvort þú fórst í þetta allt í tímunum en glósurnar mínar eru bara með þetta mjög gróft.
Replies:
Subject: mac


Author:
ælkwjf
[ Edit | View ]

Date Posted: 01:49:26 02/18/04 Wed

er til einhver góður compiler fyrir makka, mac os9.x eda X?
Replies:
  • Re: mac -- SiggiSveinn, 12:41:35 02/19/04 Thu
Subject: áhugamaður


Author:
zenux
[ Edit | View ]

Date Posted: 12:37:37 02/13/04 Fri

Hvaða compiler er mjög góð
digitalmars.com
open watcom
borland 5.5 compiler
gnu free compiler -> mac X unix og linux og unix.
visual c++ 6.0



Málið er að ég er að leita góð compiler en samt langar mikið í visual en kostar mikið.. Mér vantar bara betra ráð hvað compiler er best fyrir win32 og dos. Einnig ef maður langar að hanna leikur eða glugga. ps bara gaman að fá þitt álit hjámtýr.
Replies:
Subject: Optimal strategy


Author:
Hjálmtýr
[ Edit | View ]

Date Posted: 15:36:59 02/12/04 Thu

Það kom fram spurning eftir fyrirlesturinn í morgun um hegðun "optimal strategy" aðferðarinnar til að spila Nim.
Ég svaraði því ekki alveg rétt, þannig að hér kemur nákvæmara svar.

Segjum að staðan sé sú að þrjár hrúgur sé með 4, 5 og 2 steina hver. Þá er tvíundarútgáfur þessara talna XOR-aðar saman:

4: 0100
5: 0101
2: 0010
--------
útk: 0011

Ef við XOR-um útkomuna við hin gildin þá fáum við hvert nýja gildið í hrúgunni þarf að vera til að XOR-unin á öllum gildunum gæfi 0000. Þetta nýja gildi má auðvitað ekki vera meira en gamla gildið í hrúgunni, því þá þurfum við að BÆTA við steinum, en við megum bara taka burt steina.

Skoðum XOR-un útkomunnar við gildi einstakra hrúga:
Hrúga 1: 0100^0011=0111, nýja gildið er því 7, sem er meira en gamla gildið, sem var 4, svo þetta gengur ekki. Hrúga 2: 0101^0011=0110, nýja gildið er 6, en gamla gildið var 5, svo þetta gengur ekki. Hrúga 3: 0010^0011=0001, nýja gildið er 1, en gamla gildið var 2. Þetta er því í lagi. Ef við tökum einn stein út úr hrúgu 3 þá er XOR-útkoma allra gildanna:

4: 0100
5: 0101
1: 0001
--------
útk: 0000

Við erum því í þessari eftirsóknarverðu stöðu.

Það má rekja sig í gegnum allar hrúgurnar og prófa þetta, en það er reyndar nóg að fara beint í eina af þeim hrúgum sem hafa 1-bita í sama sæti og efsti 1-bitinn er í útkomunni. Hér að ofan var 3ja hrúgan sú eina sem hafði 1-bita í öðru sætinu frá hægri, sem var efsti bitinn í útkomunni.

Ég vona að þetta skiljist, amk. af þeim sem hafa eitthvað spáð í þessa aðferð.
Subject: Villa í bókinni, eða er ég bara rugluð í þessu?


Author:
Heiða María
[ Edit | View ]

Date Posted: 23:47:00 01/29/04 Thu

Sæl öll.

Ég var að lesa þessa blessuðu reikniritabók og stoppaði á litlum dæmum sem tekin eru á bls. 41. Þar er sagt að með þeim sé hægt að reikna út minnstu heiltölu sem sé samt stærri en lgN, og að sú tala eigi að tákna fjölda bita sem þarf til að tákna N í tvíundakerfinu.

Ég prófaði að gamni að forrita þetta, t.d. fyrir N=32 en fékk mismunandi út úr dæmunum tveimur... Hér er kóðinn:

#include
using namespace std;

int main()
{
int lgN;
int N = 32;
int N1 = N;

for (lgN = 0; N > 0; lgN++, N /= 2);// gefur 6
cout << "lg" << N1 << " = " << lgN << endl;

N = N1;
int t;

for (lgN = 0, t = 1; t < N; lgN++, t += t);//gefur 5
cout << "lg" << N1 << " = " << lgN << endl;

return 0;
}

Á þetta ekki að vera 5? Er þetta ekki bara vitlaust að það eigi að finna minnstu heiltölu sem er stærri? Eða hvað???
Replies:
Subject: Eigin lausnie


Author:
Áhugamaður um C++
[ Edit | View ]

Date Posted: 12:32:29 01/21/04 Wed

Ef maður er kemst ekki í dæmtatímann í dag hjá þér Hjálmtýr en hefur áhuga að fá sínar lausnir hvernig getur maður nálgast þær? Næsta fyrirlestri eða?
Replies:
Subject: exe keyrsla


Author:
No name
[ Edit | View ]

Date Posted: 10:47:59 01/08/04 Thu

þegar ég keyri exe forritin fæ ég alltaf:

"note: the terms of the End User License for visual c++ introductory Edition do not permit redistribution of executables you create with this product"

en svo kemur sjálft forritið fínt eftir að hafa ýtt á ok.
er ekki e-r leið til að losna við þessu ótrúlega pirrandi skilaboð í hvert skiðti sem maður keyrir forritið?
Replies:
Subject: Dæmatímar í þessari viku


Author:
Áhugamaður um C++
[ Edit | View ]

Date Posted: 12:45:29 01/19/04 Mon

Eru dæmatínar í VRII í þessari viku eða í tölvuverum?
Replies:
Subject: Er N! skilgreint fyrir mínustölur?


Author:
Heiða María
[ Edit | View ]

Date Posted: 22:34:38 01/18/04 Sun

Titillinn segir allt sem segja þarf ;-)

P.S. Það er ýmislegt sem ég þyrfti að spyrja um en krefst þess að ég segi frá hluta af svörum við heimadæmum, svo hvað má spyrja um og hvað ekki?
Replies:
Subject: Í sambandi við Visual Studios .NET


Author:
Unnar
[ Edit | View ]

Date Posted: 12:11:36 01/12/04 Mon

Hvað á maður að velja í Visual Studios .NET ef maður vill gera það sem samsvarar Win32 Console Application í V. S. C++ 6.0?
Replies:
Subject: Veldi í c++


Author:
No name
[ Edit | View ]

Date Posted: 19:01:19 01/18/04 Sun

Hvernig setur maður í veldið 2/3 eins og ég er að reyna að gera í 2.dæmi
Replies:
Subject: Fyrirspurn um heimadæmi 1


Author:
Áhugamaður um C++
[ Edit | View ]

Date Posted: 04:45:28 01/18/04 Sun

Í dæmi 1 stendur: "Skrifið tvær útgáfur af fallinu hrop(n) í C++, sem skilar gildin n!. Önnur útgáfan á að vera endurkvæm (e. recursive) og nota sér að n! = n*(n-1)!. Hin útgáfan á að nota ítrun, því n! = 1*2*...*n. Skrifið einnig aðalforrit sem kallar á bæði föllin"

Mætti útfæra þetta verkefni með tveimur mismunandi "hrop"-föllum og einni main-aðferð þar sem kallað er á föllin og gildin látin prentast, þ.e.a.s. svipað útfærslu á dæmi 2.

Ef þett er einhvern misskilningur væri gaman að fá að vita hvað ég er ekki að skilja.
Replies:
Subject: Hvar eru hólf dæmatímakennara


Author:
No name
[ Edit | View ]

Date Posted: 23:19:20 01/17/04 Sat

blessaður,
Hvar eru hólf dæmatímakennara, eru þau í vrII?
Replies:
Subject: Varðandi skilaverkefni 1


Author:
No name
[ Edit | View ]

Date Posted: 15:32:41 01/16/04 Fri

Það stendur á heimadæmablaðinu að við eigum að skila í hólf dæmatímakennara okkar, eigum við þá bara að prenta út source kóðana?
Replies:
Subject: Visual Studio .net


Author:
Árni Ingólfsson
[ Edit | View ]

Date Posted: 13:54:08 01/13/04 Tue

Sæll Hjálmtýr
Ég er með eina spurningu sem er kannski fáránleg. Myndir þú mæla með því að ég setti Visual Studio.net í stað útgáfuna sem kemur með bókinni?
Replies:
Subject: Eldri útgáfur ,,C++ in 21 days"


Author:
Valdimar Björn Ásgeirsson
[ Edit | View ]

Date Posted: 16:10:32 01/05/04 Mon

Það vildi svo til að ég á aðra útgáfu af bókinnni ,,C++ in 21 days" eftir Jesse Liberty - er hún fullnægjandi eða er nýtt efni í útgáfu 4 það mikilvægt áfanganum að ég verði að kaupa hana?
Replies:
Main index ] [ Archives: [1] ]
[ Contact Forum Admin ]


Forum timezone: GMT+0
VF Version: 3.00b, ConfDB:
Before posting please read our privacy policy.
VoyForums(tm) is a Free Service from Voyager Info-Systems.
Copyright © 1998-2019 Voyager Info-Systems. All Rights Reserved.